preload loader
til baka á heimasíðu

Kynnstu norrænum nágrönnum þínum

Hvers vegna eigum við að læra sænsku ef við förum aldrei til Svíþjóðar? Nemendurnir í danska bekknum hennar Signe Sloth eiga erfitt með að skilja til hvers þeir geta notað sænskunámið sitt.

En löng samvinna við sænskan bekk í Ljungby í Suður-Svíþjóð jók áhugann mikið. Nemendurnir hafa bundist vináttuböndum yfir Kattegat.

- Fyrst fannst nemendunum erfitt að skilja hverjir aðra en ekki leið á löngu þar til þeir náðu að stilla eyrun, segir Signe Sloth.

6. bekkurinn hennar heimsótti sænska bekkinn haustið 2008 og sænsku krakkarnir hafa líka heimsótt Hammel, sem er sveitaþorp skammt frá Árósum á Jótlandi.

Gagnkvæm samvinna
Bekkirnir vinna saman í verkefninu ”Tungumál, hreyfing og heilsa”. Á heimasíðu setja þau inn hljóðskrár, myndir og texta um þetta verkefni sitt.

Bekkirnir vinna jafnt að nýju þemunum. Meðal annars hafa krakkarnir búið til hljóðorðabók þar sem þau hafa lesið inn sömu orðin á dönsku og sænsku.

-Ég hef góða reynslu af samvinnu við aðra bekki á Norðurlöndum. Við eigum margt sameiginlegt, svo sem vinnuáhuga, segir Signe Sloth, kennari, sem sótti um styrk fyrir verkefni hjá Nordplus Junior.

Skólabekkir geta sótt um þróunarstyrk hjá Nordplus Junior.

Félög og samtök geta sótt um styrk gegnum NORDBUK.

Kynnstu nágrönnum þínum á Norðurlöndum

Nordplus Junior styður m.a. bekkjasamstarf skóla á Norðurlöndum þar þema verkefnisins er norræn mál og menning. Þú getur sótt um styrk fyrir grunnskóla og unglingaskóla. Samtök og félög geta sótt um styrk gegnum NORDBUK.

Meira um styrktarmöguleikahérna.

Góð hugmynd
Finndu þróunarbekk og sameiginlegt þema sem þið getið unnið saman að á löngum tíma. Samvinnubekkirnir geta verið frá eftirtöldum löndum:

Danmörk, Finnland, Færeyjar, Grænland, Ísland, Noregur, Svíþjóð og Áland.

Fáðu hjálp við aðfinnasamstarfsaðila.

Góð umsókn
Skrifaðu skýrt og greinilega:

Hver er tilgangurinn með verkefninu?
Hverjir geta notið verkefnisins?
Hvenær fer verkefnið fram?

Mundu að verkefnið verður að tengjast Norðurlöndunum til að geta fengið styrk.

Umsóknina á að fylla út á netinu. Þú getur vistað umsóknina og opnað hana aftur áður en þú sendir hana.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er einu sinni á ári í byrjun mars. Kynntu þér umsóknarfrestinnhérna.

Stuðningur við norræna samvinnu

NORDBUK styður verkefni með börnum og unglingum á Norðurlöndunum. Sæktu um styrk gegnum NORDBUK ef þú sækir
um fyrir samtök eða félag barna eða unglinga. Skólabekkir geta sótt um styrk gegnum Nordplus Junior.

NORDBUK táknar Barna- og unglingaráð Norðurlanda. Nánar um styrktarmöguleikahérna.

Góð hugmynd
Mundu:
nordiske lande.
- að verkefnið skal efla norræna vitund og samvinnu.
- að verkefnið er samvinna barna eða unglinga í minnst tveimur öðrum norrænum löndum
- að það er ekki nóg að bjóða börnum frá Norðurlöndunum í hlutverkaspil. t.d.

Dæmi - Ung á eyju
Hvernig er að vera ung á eyju á Norðurlöndum?
Ráðstefna með ungu fólki frá sjö stærstu eyjum Eystrasalts.

Góð umsókn
Skrifaðu skýrt og greinilega:

Hver er tilgangurinn með verkefninu?
Hverjir geta notið verkefnisins?
Hvenær fer verkefnið fram?

Mundu að verkefnið verður að tengjast Norðurlöndunum til að geta fengið styrk.

Umsóknina á að fylla út á netinu. Þú getur vistað umsóknina og opnað hana aftur áður en þú sendir hana.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er fjórum sinnum á ári fyrir verkefnisstyrk:

1. febrúar
1. apríl
1. september
1. nóvember

Ath: Ef þú vilt sækja um styrk fyrir samtök eða tengslanet er frestur til 1. október.

Styrkveiting
Umsóknir eru sérlega áhugaverðar,

- ef börn og unglingar eru máttarstólpar verkefnisins.
- ef verkefnið er samvinna fleiri en þriggja norrænna landa.

Þú færð að vita hvort umsóknin þín sé samþykkt eða henni hafnað. Hugsanlega færðu ábendingar um að breyta umsókninni til að fá styrk í næstu umsóknarumferð.

    

Okkar skoðun

Þetta finnst krökkunum um bekkjasamskiptin.

 

NORDBUK

 
 

Skrifaðu umsókn til Nordplus Junior.

 

Skrifaðu umsókn til NORDBUK.

 

Finndu samstarfsaðila

Leitaðu að samstarfsaðilum á Norðurlöndum.

 
 
 
 
Du er her: dr.dk > Undervisning > Norden > is > Stoette

© Copyright DR 2012. Materialet må ikke gengives uden tilladelse jævnfør lov om ophavsret.